Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1206, 126. löggjafarþing 369. mál: eiturefni og hættuleg efni (yfirstjórn, gjaldtaka o.fl.).
Lög nr. 42 22. maí 2001.
Ráðherra er heimilt að setja í reglugerð ákvæði um framleiðslu, innflutning, dreifingu, sölu, notkun, innihald, eftirlit og merkingu fegrunar- og snyrtiefna, hvort sem efnin flokkast sem eiturefni eða hættuleg efni eða ekki.
Þingskjal 1206, 126. löggjafarþing 369. mál: eiturefni og hættuleg efni (yfirstjórn, gjaldtaka o.fl.).
Lög nr. 42 22. maí 2001.
Lög um breytingu á lögum nr. 52/1988, um eiturefni og hættuleg efni, með síðari breytingum.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. laganna:- 3. mgr. orðast svo:
- Við bætist ný málsgrein sem orðast svo:
2. gr.
Við lögin bætist ný grein, 17. gr. A, sem orðast svo:Ráðherra er heimilt að setja í reglugerð ákvæði um framleiðslu, innflutning, dreifingu, sölu, notkun, innihald, eftirlit og merkingu fegrunar- og snyrtiefna, hvort sem efnin flokkast sem eiturefni eða hættuleg efni eða ekki.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 23. gr. laganna:- 1. mgr. orðast svo:
- Á eftir 5. mgr. koma fjórar nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Hollustuvernd ríkisins er heimilt að taka gjald fyrir vinnu stofnunarinnar við skráningu, breytingu á skráningu, undanþágu frá skráningu, samhliðaskráningu og endurnýjun á skráningu varnarefna. Í skráningu varnarefna felst m.a. úttekt sérfræðinga á þörf fyrir notkun viðkomandi efna og á áhættu við notkun þeirra.
Þá er Hollustuvernd ríkisins heimilt að krefja umsækjanda, sbr. 6. og 7. mgr., um endurgreiðslu alls kostnaðar sem fellur til vegna sérstakra rannsókna eða úttekta utanaðkomandi sérfræðinga, enda hafi verið haft samráð við umsækjanda um fyrirhugaðar rannsóknir eða úttektir og umsækjanda gefinn kostur á að draga umsókn sína til baka áður en til slíks kostnaðar er stofnað.
Ráðherra getur, að fengnum tillögum Hollustuverndar ríkisins, sett gjaldskrá vegna þeirrar starfsemi sem talin er upp í 6., 7. og 8. mgr. Upphæð gjalds skal taka mið af kostnaði við þjónustu og framkvæmd einstakra verkefna. Gjöld má innheimta með fjárnámi.
4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 9. maí 2001.